Mjúkt og aðgengilegt pinot noir rauðvín sem framleitt er af verðlaunaframleiðandanum Scott Family . Vínið er dökk rúbínrautt. Lyktin einkennist af hýði, dökkum berjum og vanillu. Mjúk áferð er á víninu sem minnir á mjólkursúkkulaði, dökka ávexti og vanillu.
Skemmtilegt vín sem parast vel með ljósu kjöti, stemmningu og pinnamat.