Flaggskip Castello Romitorio víngerðarinnar. Vínið er unnið úr bæði ungum og gömlum vínvið Sangiovese þrúgunnar af hálendi noðverstur af Montalcino svæðinu.
Sangiovese-þrúgurnar eru tíndar af mikilli nákvæmni og aðeins allra bestu berin valin til víngerðar. Vínið liggur í 24 mánuði í franskri eik.
Vín með mikilli dýpt og góðri heild. Í upphafi er ilmurinn fínlegur og blæbrigðaríkur; þar má greina hvítan pipar, blá blóm og vaxkennda tóna, sem þróast síðan yfir í dekkri tóna, líkt og sæt brómber. Í munni er vínið opið en kraftmikið; það einkennist af safaríkum þroska, góðri fyllingu og miðlungs uppbyggingu, sem heldur í klassískan stíl Sangiovese-þrúgunnar.
Vín sem kallar á flotta steik.