Almennt
Seljandi er Alvín ehf., kt. 470105-2240, Dugguvogur 2, 104 Reykjavík, sími 791-3001, netfang alvin@alvin.is.
Netverslun Alvínar er ætluð fyrirtækjum og rekstraraðilum. Til að panta þarf viðskiptaaðgang sem skráður er á kennitölu fyrirtækis.
Alvín ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Viðskiptaaðgangur
- Sá sem stofnar aðgang staðfestir að hann hafi heimild til að panta fyrir hönd fyrirtækisins.
- Kennitala fyrirtækisins er skráð við stofnun aðgangs og er notuð á reikninga. Eftir það breytir aðeins starfsfólk Alvínar henni — hafið samband ef hún er röng.
- Eldri pantanasaga fyrirtækisins og umsamin verð birtast á aðgangi þegar Alvín hefur staðfest að hann tilheyri fyrirtækinu.
- Alvín getur lokað aðgangi sem er misnotaður.
Verð og skattar
Öll verð í netversluninni eru birt án virðisaukaskatts (VSK). VSK bætist við í körfu og greiðsluferli og kemur fram á pöntunarstaðfestingu og reikningi. Sum verð eru kassaverð og kemur það þá fram við vöruna. Viðskiptavinir með samning sjá umsamin verð þegar þeir eru innskráðir. Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
Pantanir og afgreiðsla
Viðskiptavinur fær tölvupóst þegar pöntun hefur verið móttekin. Starfsfólk Alvínar staðfestir magn og sendingu; sé vara ekki til í umbeðnu magni er haft samband. Reikningur er gefinn út í bókhaldskerfi Alvínar þegar pöntun hefur verið yfirfarin.
Greiðsla
Greitt er gegn reikningi. Gjalddagi er 10 dögum eftir útgáfudag reiknings. Séu reikningar ekki greiddir á réttum tíma reiknast dráttarvextir samkvæmt lögum.
Afhending vöru og sendingarkostnaður
Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Afhendingartími er 1-4 virkir dagar. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Vörur eru eingöngu afhentar með heimsendingu; ekki er hægt að sækja pantanir.
- Höfuðborgarsvæðið (ásamt póstnúmerum 116, 161, 162, 271 og 276): sendingargjald er 1.500 kr. án VSK fyrir pantanir undir 50.000 kr. án VSK. Frí sending er á pöntunum frá 50.000 kr. án VSK. Sendingargjaldið kemur fram í körfu áður en pöntun er staðfest.
- Utan höfuðborgarsvæðisins er sent með Eimskip eða eftir sérstöku samkomulagi. Sendingarkostnaður er ekki innifalinn í samtölu pöntunar á vefnum: Alvín sendir viðskiptavini kostnaðinn í tölvupósti og pöntunin er ekki endanleg og ekki afgreidd fyrr en viðskiptavinur hefur samþykkt hann skriflega.
- Tilboð á vörum gilda óháð sendingarsvæði; sendingarkostnaður reiknast sér.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Vinsamlegast hafið samband á alvin@alvin.is ef upp vakna spurningar.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar eru ekki afhentar þriðja aðila nema að því marki sem þarf til að afgreiða pöntun (t.d. til flutningsaðila), til þjónustuaðila sem vinna gögnin fyrir hönd Alvínar (hýsing, tölvupóstur, bókhald) eða þegar lög krefjast þess. Nánar í persónuverndarstefnu Alvínar.
Varnarþing
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á Alvín ehf. á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.
