Persónuverndarstefna

Þessi stefna lýsir hvernig Alvín ehf. fer með persónuupplýsingar í tengslum við vefverslunina alvin.is.

Ábyrgðaraðili

Alvín ehf., kt. 470105-2240, Dugguvogur 2, 104 Reykjavík, sími 791-3001, netfang alvin@alvin.is.

Hvaða upplýsingar og hvers vegna

  • Viðskiptaaðgangur: nafn fyrirtækis, kennitala, nafn tengiliðs, netfang, netfang fyrir reikninga, sími og heimilisfang — til að stofna og reka aðgang, afgreiða pantanir og gera reikninga (samningur).
  • Pantanir: vörur, magn, verð, sending og virðisaukaskattur — til afgreiðslu og bókhalds (samningur og lagaskylda samkvæmt bókhaldslögum).
  • Umsamin verð: til að sýna viðskiptavini hans eigin verð (samningur).
  • Öryggi: IP-tala er geymd dulkóðuð (hash) í 15 til 60 mínútur til að verjast misnotkun innskráningar og nýskráningar (lögmætir hagsmunir).
  • Vefmælingar: aðeins ef gestur samþykkir — sjá „Vafrakökur“ hér að neðan (samþykki).

Við seljum hvorki né leigjum persónuupplýsingar og notum þær ekki í markaðssetningu.

Flutningur gagna á nýjan vef

Þegar nýr vefur Alvínar var tekinn í notkun voru viðskiptavinaupplýsingar, afsláttarkjör og pantanasaga flutt af eldri vef Alvínar, svo viðskiptavinir hafi áfram aðgang að sínum upplýsingum. Engin gögn eru flutt úr bókhaldskerfi Alvínar á vefinn og kerfin eru ekki tengd. Eldri pantanir og afsláttarkjör birtast aðeins á aðgangi sem staðfest hefur verið að tilheyri viðkomandi fyrirtæki.

Þjónustuaðilar sem vinna gögn fyrir Alvín

  • Hýsing vefsins: Cloudways (á netþjóni DigitalOcean í Amsterdam, innan EES).
  • Tölvupóstur: Google Workspace — póstur frá vefnum og samskipti við viðskiptavini.
  • Bókhald: opinberir reikningar eru gefnir út í bókhaldskerfinu Reglu; starfsfólk Alvínar færir reikningsupplýsingar þangað. Vefurinn er ekki tengdur Reglu.
  • Flutningur: Eimskip fær nafn, heimilisfang og síma viðtakanda þegar vara er send utan höfuðborgarsvæðisins.
  • Vefmælingar: Google Analytics, aðeins ef gestur hefur samþykkt.

Upplýsingar eru auk þess afhentar þegar lög krefjast þess.

Vafrakökur

Vefurinn notar kökur sem eru nauðsynlegar fyrir innskráningu og körfu. Engar auglýsinga- eða samfélagsmiðlakökur eru notaðar.

Google Analytics er aðeins virkt ef gestur velur „Samþykkja“ á samþykkisborðanum; fyrir það eru engar mælingar sendar. Mælingarnar eru stilltar án auglýsingasniðs og án Google Signals. Valið er geymt í kökunni alvin_consent í eitt ár. Gestur getur hvenær sem er breytt vali sínu eða dregið samþykki til baka með tenglinum „Vafrakökustillingar“ neðst á síðunni; þá eru kökur Google Analytics fjarlægðar og engar frekari mælingar sendar.

Hve lengi

Pantanir og gögn sem tengjast reikningum eru varðveitt eins lengi og lög um bókhald krefjast. Öðrum upplýsingum um aðgang er eytt að beiðni viðskiptavinar, nema lög krefjist varðveislu.

Réttindi þín

Þú átt rétt á aðgangi að upplýsingum um þig, leiðréttingu, eyðingu (nema lög krefjist varðveislu), takmörkun vinnslu, flutningi gagna og að andmæla vinnslu. Beiðnir sendist á alvin@alvin.is. Kvörtun má beina til Persónuverndar (personuvernd.is).