Vandað vinalegt vín í góðu jafnvægi. Vín sem tekur út gerjun í ryðfríum stáltönkum og í kjölfarið er vínið látið eldast í 12 mánuði í franskri eik.
Litur vínsins er dökk rúbínrauður. Ilmur vínsins ber vott af hvítum pipar, villtum kryddjurtum og dökkum berjum sem gefur víniinu sérstæðan ilm.
Mild sýra og þétt tannín. Dökk ber, eik og kryddaðirtónar skreyta bragð vínins sem endist lengi í munni.
Parast vel með ítölskum mat, brauðmeti og skinku. Upplagt með rauðrófu carpaccio. Steinliggur einnig með flottri steik.