Notast við allar 10 blöndurnar í framleiðslunni og liggur því í minnst 5 ár á amerískri eik. Lyktin er mjúk krydduð og ber einkenni sætra ávaxta og karamellu. Aðgengilegt ferskt bragð með keim af eplum og perum. Mjúkt, langt og ljúffengt.
Verð og gæði fara hér vel saman og hentar einstaklega vel í keyrslu á klassískum Bourbon kokteilum svo sem Whiskey Sour, Hot Toddy og Manhattan.