Margverðlaunaður vermút sem bruggaður er eftir aldagamalli uppskrift. Amber rauður með mildri og kryddaðri lykt sem minnir á valhnetur, kóla, kanil, jörð og vanillu. Bragðið hefur nokkuð flókna samsetningu krydda í góðri harmóníu í bland við þurrkaða ávexti, möndlur, sítrus og peru. Minnir einnig á kryddköku og tóbak. Þéttur, léttur og bitur.
Bestur í Negroni, Manhattan og Americano.