Pisco sem unnin er úr Quebranta þrúgunni. Lyktin einkennist af peru, rauðum eplum, sítrus og þurrum ávexti, ásamt smá rjóma og kakó. Bragðið hefur að geyma góða fyllingu þar sem ávextir, sítrus og hnetur eru í fyrirrúmi en einnig má greina smávægilegt reykbragð og dökkt súkkulaði.
Kraftmikið og þétt bragð sem veitir góða fyllingu í kokteilagerð, til að mynda Pisco Sour.