Unnið úr einungis einni blöndu sem hefur legið í minnst 7-9 ár á eik til þess að ná fullkomnu þroskastigi. Hnitmiðuð lykt sem ber keim af þurrum kryddum, peru, kakó, hlynsírópi og vanillu. Mikil og þroskuð fylling í bragði með sterkum einkennum af plómu og kirsuberjum.
Kraftmikið en jafnframt mjúkt og langlíft bragð.