Blanda úr eaux-de-vie frá Grande og Petite Champagne þrúgu svæðunum. Lífleg djúp lykt umlukin apríkósum, þrúgum og blómum. Heiðarlegt bragð í góðu jafnvægi krydda í bland við hnetukeim og eik. Koníakið er ungt og bragðið því stutt og hnitmiðað.
Ljúffengt eitt og sér en einnig upplagt í kokteilagerð og ber þar helst að nefna Sidecar.