5 ml af sykursýrópi (eða einn sykurmoli og nokkrir
vatnsdropar til þess að leysa sykurinn upp)
3 skvettur af Angostura Bitters
Appelsínubörkur eða kokteil ber til skreytingar.
Aðferð
Ef notast er við sykurmola þá er byrjað á því að mylja hann með vatnsdropum og Angostura Bitters í botni kokteilhristara þangað til sykurinn er allur búinn að leysast upp.
Næst er Four Roses blandað við og allt hrært með klaka í um 30 sekúndur og að lokum síað í glas með klaka.