Angostura er frá Trinidad and Tobago og er eitt af leiðandi framleiðslufyrirtækjum Karabíska hafsins. Saga fyrirtækisins hefst árið 1824 þegar uppskriftin af Angostura Aromatic Bitters leit fyrst dagsins ljós en þá í þeim tilgangi að vera magalyf fyrir magaveika hermenn.
Í dag er enginn bar án þessa ómissandi hráefnis í alla klassíska kokteilagerð en uppskriftin hefur ekkert breyst frá fyrstu flösku. Angostura framleiða einnig fjölbreyttavörulínu af rommi.